OOPS. Your Flash player is missing or outdated.Click here to update your player so you can see this content.
plusferdir-logo1

Félagsmenn

Könnun

Forsíða
KEMI ehf býður FHS félögum 15% afslátt af flestum algengustu vörum sínum
Höfundur Sigurður Þ. Ragnarsson   
mánudagur, 06 febrúar 2012

blavrur1_small Kemi er innflutningsverslun með hreinsiefni, smurefni, öryggisvörur og fjölmargar aðrar rekstrarvörur fyrir  fyrirtæki og einstaklinga.  Metnaður Kemi er að bjóða  góðar vörur sem virka vel á sanngjörnu verði.

Já Kemi fæst nánast  allt sem þarf til þrifa í fyrirtækinu, heimilinu og bílnum.

Smurolíur fyrir allar gerðir farartækja og smurtæki ýmiskonar.  Slagorð Kemi er  „Kemi ….svo allt gangi smurt“. Á undanförnum árum hefur Kemi kynnt umhverfisvænar og matvælaviðurkenndar vörur sem fengið hafa mjög góðarviðtökur.  Má þar nefna bæði hreinsiefni, niðurbrotsefni fyrir rotþrær og matvælaviðurkennd smurefni fyrir allan matvælaiðnað. Einnig er Kemi framarlega í sölu á sótthreinsiefnum og sótthreinsibúnaði.

Sage Wash sótthreinsirinn hefur fengið frábærar viðtökur í matvælaiðnaðinum bæði til sjávar og sveita enda er hér um að ræða þægilega og góða lausn sem sparar bæði tíma og fjármuni.Allar nánar upplýsingar um vörur og starfsemi Kemi er að finna á www.kemi.is og eru allir FHS félagar jafnframt boðnir velkomnir í verslunina að Tunguháli 10 Reykjavik.

Síðast uppfært ( mánudagur, 06 febrúar 2012 )
 
15% Afsláttur af heilsuvörum Celsus
Höfundur Víðir Aðalsteinsson   
fimmtudagur, 02 febrúar 2012

Celsus ehf.  Heilsu- og hjúkrunarvörur sem auglýsir hér á vefnum okkar, bjóða nú félagsmönnum 15% afslátt af vörum gegn framvísun félagsskirteinis þegar verslað er í verslun þeirra að Ægisíðu 121, 107 Reykjavík.


Celsus ehf  var stofnað árið 1995 og er heildverslun sem selur hágæða vottaðar heilsuvörur  og eru viðskiptavinir  apótek um land allt, Fríhöfninn í Keflavík og nokkrir stórmarkaðir. 


Vörur sem við þekkjum er sólarvörnin þeirra vinsæla  „Proderm“ og eins Aloa Vera sem allir þekkja, en hjá þeim er líka að finna fleiri hágæða vörur eins og:

Life Extention : Bætir líkamlegt þrek, eykur úthald, betri svefn og léttir lund.

AstaZan : Er byltingakennt andoxunarefni, eykur styrk og þol vöðva og lagar bólgur, styrkir varnir húðar.   

Spirulina : Er vottað lífrænt fjölvítamín.
Collagen : Er vísindalegað prófað, gott fyrir liðina, húð, hár og neglur. 

Sorbact  : Sáraumbúðir „græn sáralækning“

 

Nánari upplýsingar um allar vörur Celsus er að finna á heimasíðu þeirra www.Celsus.is og er um að gera að skoða þar og í framhaldinu að kíkja í heimsókn til þeirra á Ægissíðuna til að fá frekari upplýsingar og góð ráð sem hentar hverjum og einum.  Anna og starfsmenn hennar taka vel á móti félagsmönnum.                   

Síðast uppfært ( fimmtudagur, 02 febrúar 2012 )
 
Árshátíð Íslendinga á Costa Blanca 2012
Höfundur Sveinn Arnar Nikulásson   
miðvikudagur, 01 febrúar 2012

hoteltraina1Þann 10. mars nk. verður árshátíðin haldin á Hotel Traiña í San Pedro del Pinatar. Hefst hún kl. 19:00 með fordrykk. Þá verður borinn fram glæsilegur 3ja rétta kvöldverður með borðvíni, vatni eða bjór. Happdrætti, lifandi tónlist við allra hæfi til klukkan eitt. Daginn eftir er boðið upp á glæsilegt morgunverðarhlaðborð.

Miðaverð á mann með gistingu í tvíbýli 50 €
Miðaverð á mann með gistingu í einbýli 60 €
Miðaverð án gistingar 35 €

Miðasala á hittingum og hjá Hrefnu og Gulla í Las Mimosas. Símar 965 073 216 og 637 979 656. Einnig má senda þeim tölvupóst á Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það .

Eins og undanfarin ár er takmarkaður fjöldi herbergja á hótelinu og því betra að kaupa miða sem fyrst og ekki seinna en 2. mars nk.

Mikið stuð og mikið fjör!

 
Aukaflug um páska komið inn á bókunarvél
Höfundur Sigurður Þ. Ragnarsson   
fimmtudagur, 26 janúar 2012

Búið er að bæta inn aukaflugi um páskana, bæði fram og til baka og eru flugin komin inn á bókunarvélina á innri vef félagsins. Sætin í vélunum sem lagt var upp með í upphafi seldust hratt upp og við því hefur verið brugðist.

Brottför verður frá Keflavík í beinu flugi til Alicante 30. mars og er tími brottfarar 8:40 og áætluð lending í Alicante kl 15:10, en sumartími skellur á í Evrópu 25. mars og tekur komutíminn mið af því.

Heimflug verður að næturlagi, þann 10. apríl eða 14. apríl og brottfaratími báða dagana áætlaður 23:55.

 
Verð á bilaleigubílum skv. samningi FHS og Goldcar
Höfundur Sigurður Þ. Ragnarsson   
þriðjudagur, 10 janúar 2012
goldcar-fhsGoldcar og FHS hafa komið sér saman um verð á bílaleigubílum fyrir sumarið 2012. Til að nálgast verðlistann þarf að fara í kaflann BÍLALEIGA og þá birtist undirsíða, þar sem hægt að að velja verðlistan fyrir sumarið. Verðið á bílunum er fljótandi og tekur mið að markaðsaðstæðum hverju sinni og getur því breyst án fyrirvara (lækkað/hækkað). Þegar einhver leigir bíl, sama hvenær það er gert, er alltaf miðað við verðið sem í gildi er þegar viðkomandi vill fá bílinn afhentan, og það verð gildir út allan leigutímann. 
 
Ný félagsskírteini FHS á leið úr prentsmiðju
Höfundur Sigurður Þ. Ragnarsson   
laugardagur, 07 janúar 2012

ny_skrteiniNú er unnið að prentun nýrra félagsskírteina fyrir árið 2012, en vegna tæknilegra örðugleika í prentsmiðju, seinkaði því nokkuð. Nú er það mál leyst og menn geta farið að búast við nýjum skírteinum von bráðar á það heimilsfang sem þeir eru með skráð í félagsskrá.

Rétt er að minna á að félagatalið er ekki samkeyrt við þjóðskrá, þess vegna þurfa félagsmenn að láta vita ef þeir hafa flutt aðsetur sitt á nýliðnu ári.  

Nýtt útlit er á félagsskírteinunum í ár auk þess sem samningsaðili okkar, Plúsferðir, kemur einnig að útgáfu þeirra með merki sýnu á bakhlið.

Athugið að nú þurfa félagsmenn að vera viðbúnir því að þurfa framvísa kortinu, ef félagsmenn ætla njóta afsláttar á þeim stöðum þar sem FHS hefur náð sérstökum afsláttarkjöum. Listi yfir þá aðila sem veita FHS-félögum sérkjör eru á hér á heimasíðunni undir kaflanum "Tilboð til FHS félaga". Til að allir þeir aðilar sem veita félagsmönnum afslátt komi fram á listanum þurfa menn að vera á innri vef. Sumir vilja nefnilega ekki að afslátturinn sé fyrir allra augum.

 

 
Af flugmálum
Höfundur Sigurður Þ. Ragnarsson   
laugardagur, 07 janúar 2012

2-samningur Frá því flugsamningur var gerður milli FHS og Plúsferða, hefur áfram verið unnið að hagsmunamálum félagsmanna í tengslum við flugið.
Helst ber að telja: 
 
-Unnið hefur verið að því að finna heppilega dagsetningu á aukaflugi vegna páskaflugs. Dagsetningin er bundin við að flugvélin hafi verkefni til baka, til að þurfa ekki að fljúga tóm eða illa nýtt, enda myndi slíkt hleypa verðinu upp. Það sama er upp á teningnum þegar farþegar eru sóttir, þá þarf vélin að hafa verkefni á útleiðinni af sömu rökum. Líklegst í stöðunni er að útflugið frá Íslandi vegna aukaflugsins kringum páskana verði 30. mars og heimflugið frá Spáni 9. apríl. Þetta skýrist vonandi í næstu viku.

-Þá er niðurstöðu að vænta fljótlega í því að fólk geti bókað beint, alla leið, frá Keflavík til Alicante, með millilendingu í London, meðan ekki er beint flug á milli Keflavíkur og Alicante. Þar er verið að hugsa um tvenns konar útfærslu. Þá, eins og fyrr segir, að fólk geti bókað alla leiðina í einni bókun einu sinni í viku og hins vegar að bóka sig aðeins til London og komi sér síðan sjálft áfram með því flugfélagi sem það kýs niður til Alicante. Svipað gildir um bakaleiðina.

-Unnið er að umbótum á bókunarvél þannig að fólk geti bókað, gegn vægu gjaldi, fyrirfram ákveðin sæti í vélunum þannig að bið úti á flugvelli, vegna innritunar mörgum klst. fyrir brottför til þess t.d. að fólk geti setið saman, heyri sögunni til.

-Þá er unnið að því að FHS félagar geti í gegnum samninginn keypt auka farangursheimild, umfram þau 20 kg. sem þegar er á venjulegum miða. Niðurstöðu í þessum málum er að vænta á allra næstu dögum/vikum og þó menn séu búnir að kaupa miða þá er gert ráð fyrir að þeir geti nýtt sér þessa viðbótar þjónustu þó hún verði færð inn á bókunina eftir á.

Myndin hér að ofan er frá undirritun grunnsamningsins milli FHS og Plúsferða. Frá vinstri: Þorsteinn Guðjónsson forstjóri Plúsferða, Bjarni Jarlsson varaformaður, Hólmsteinn Björnsson gjaldkeri, Víðir Aðalsteinsson stjórnarmaður og Sigurður Þ. Ragnarsson formaður. Á myndina vantar Ragnar Ó Pétursson ritara sem einnig kom að samningsgerðinni.  

Síðast uppfært ( laugardagur, 07 janúar 2012 )
 
Hittingurinn á Kænunni í Hafnarfirði kominn úr jólafríi
Höfundur Sigurður Þ. Ragnarsson   
miðvikudagur, 04 janúar 2012
1-hittingurNú er hittingurinn á Kænunni í Hafnarfirði kominn úr jólafríi og fyrsti hittingurinn á nýju ári verður á föstudaginn kl. 15:00, líkt og áður. Töluverður fjöldi "íslenskra Spánverja" hefur sótt þessar samkomur enda tilvalið. Allir eru hvattir til að mæta, sýna sig og sjá aðra og deila fréttum manna í millum. 
Síðast uppfært ( miðvikudagur, 04 janúar 2012 )
 
Spænskir dómstólar hafna kröfu Ryanair
Höfundur Bjarni Jarlsson   
föstudagur, 30 desember 2011

ryanairplanes_1_5Kröfa Ryanair um að þurfa ekki að nota landgöngubrýr á Alicante flugvelli hafnað.

 

Rök Ryanair um að flutningur fólks frá  og að vélum félagsins fótgangandi úti á flugbraut, í stað um landgöngubrú við flugstöð, væri ímynd lággjalda flugfélags til að halda niðri kostnað við flugfargjöld, var hafnað á þeirri forsendu að Ryanair notaði landgöngubrýr í öðrum flughöfnum Spánar.

 

Santiago Martínez-Cava, forstjóri AENA’s flugþjónustunar á Alicante flugvelli, hefur ráðlagt flugrútur sem annan kost í stað landgöngubrúar, eftir hótanir Ryanair um að skera niður flug á 18 flugleiðum til Alicante með fækkun um 1.5 miljón farþega.

 

Meðal flugleiða sem Ryanair hefur hótað að fella niður eru frá London Gatwick, Doncaster, Madrid og Zaragoza.  

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 04 janúar 2012 )
 
Árshátíð og aðalfundur - allt komið á fullt
Höfundur Sigurður Þ. Ragnarsson   
þriðjudagur, 20 desember 2011
hotel_selfoss-litilÁrshátíð, ráðstefna og aðalfundur FHS verða að þessu sinni haldin á Hótel Selfossi laugardaginn 4. febrúar 2012
Nánari dagskrá bæði fyrir árshátíðina og ráðstefnuna verða auglýst fljótlega.


Boðið verður upp á fordrykk, þriggja rétta hátíðarkvöldverð og dansleik ásamt gistingu og er verðið eftirfarandi:


Tveggja manna herbergi með morgunverði 12.300 kr. per mann

Eins manns herbergi með morgunverði 16.050 kr.


Aukanótt föstudaginn 3. febrúar


Tveggja manna herbergi með morgunverði 7.900 kr.  fyrir herbergið

Eins manns herbergi með morgunverði 6.600 kr.


Verð fyrir gesti án gistingar 6.750 kr.


Bókanir eru þegar hafnar og eru félagsmenn hvattir til að bóka sig sem fyrst og tryggja sér með því gistingu og frábæra hátíð FHS.

 

Menn bóka með því að hafa samband við Hótel Selfoss í síma: 480 2500

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 10 af 616