OOPS. Your Flash player is missing or outdated.Click here to update your player so you can see this content.

Félagsmenn

Spjalltorg

heimsenda svarSiðareglurhjálp
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>
Kristján Kristjánsson
Notandi

Alvöru spjallari
Skilaboð: 37
graphgraph
Álit: 23  
Smelltu hér til að sjá upplýsingar um þennan notanda
Sjónvarpsstöðvar að heiman og sími - 2010/07/17 10:32 Þakka ykkur, leitt með breytinguna hjá ruv, ég er að velta því fyrir mér að fara þá leið sem Siggi stormur er að benda á, meira úrval stöðva og netið er jú ómissandi, þarf þá ekki lengur að fara á netkaffi til að fá þá þjónustu.

Er verð munur á fyrirtækjum með góða þjónustu, nefnt hefur verið verð hjá Telefonica 44 e pr mán. En er hægt að að kaupa á skrift tímabundið, minni að ég hafi heyrt um það einhvern tímann.

Annað varðandi símann, Þarf ekki sér tölvu síma og er hægt að hringja í hvern sem er, þ.e. óháð því að viðkomandi sé með tölvusíma heima, eða virkar þetta svipað og varðandi gsm í dag.

Þarf ekki tölvan að vera tv út?

Þakka ykkur sem eru að gefa okkur góð ráð, rabbið hefur oft komið að gagni.
KK
  Notendur verða að skrá sig inn til að geta skrifað í spjallið.
Sigurður Þ. Ragnarsson
Stjórnandi

Stjórnandi
Skilaboð: 71
graphgraph
Álit: 6  
Smelltu hér til að sjá upplýsingar um þennan notanda
Re:Sjónvarpsstöðvar að heiman og sími - 2010/07/23 12:28 Sæll Kristján.

Ódýrustu fartölvurnar hér heima eru sumar hverjar ekki með tengi út fyrir sjónvarp. Flestar eru með það og nær allar borðtölvur. Það þarf að ganga úr skugga um það.

Varðandi símann þá eru margar leiðir að hringja í gegnum netið. Flestir þekkja Skype-ið. Skype í Skype er frítt og þá þarf viðkomandi að vera með tölvu á hinum endanum. Síðan er hægt að hringja úr Skype í venjulegt heimanúmer en það kostar, en reyndar mjög lítið. Þarf að hins vegar að borga fyrirfram (kaupir svokallað inneign á Skype.com)

Sú leið sem ég fór var hins vegar að kaupa hjá Tal svokallað Smart símabox. Það kostar að ég held ekkert en þú greiðir fastagjald, 1390 kr./mán. og í þeirri tölu fylgir venjulegt íslenskt númer.

Smartboxið ferðu með út og tengir við routerinn /(modemið) (afar einfalt - ekki hægt að gera vitleysu). Síðan færðu þér svo ósköp venjulegan síma (sem þú kannski átt upp´i skáp) og pluggar við smartboxið. Þá færðu venjulegan són í símann og hringir eins og þú værir á Íslandi.
Úr þessum síma er ókeypis að hringja til Íslands í öll heimanúmer/fyrirtæki. Gæðin eru góð og þú getur talað eins lengi og þú vilt án endurgjalds. Það er bara þetta 1390 kr. gjald sem er fast. Þeir sem hringja í þig að heiman borga bara innanbæjargjald eins og þeir væru að hringja í næsta hús heima. Þú borgar ekkert þó aðrir hringi. Þá hringja þeir sem eru heima ekki í 00 34, heldur beint í þitt íslenska númer sem fylgir smartsímanum.

Fleiri leiðir eru færar til að hringja frítt/ódýrt en læt þetta duga um þessa hluti.

Vegna vinnu minnar hef ég þessa tengingu allt árið. Ég get reyndar látið loka símanum í allt að 3 mánuði en þá verður að opna hann að nýju (þeir loka max 3 mánuði). Ef ADSL er keypt af öðrum en Telefonica t.d. Vodafone má sjálfsagt fá ADSL með hléum, t.d. segja því svo bara upp þegar menn fara burtu langdvölum. En það tekur alltaf einvherja daga að fá ADSL aftur. En vel að merkja. Verð á ADSL er nokkuð mismunandi. Mér finnst það dýrt hjá Telefonica og hef hugsað að færa mig, en þar sem ég vinn svo mikið í gegnum netið þá hef ég ekki þorað því.

Vona að þú sért einhverju nær. Ef fleiri upplýsingar vantar, þá bara að skrifa hér á spjallið.

Bestu kveðjur,
Siggi stormur
varaform. FHS
  Notendur verða að skrá sig inn til að geta skrifað í spjallið.
Kristján Kristjánsson
Notandi

Alvöru spjallari
Skilaboð: 37
graphgraph
Álit: 23  
Smelltu hér til að sjá upplýsingar um þennan notanda
Re:Sjónvarpsstöðvar að heiman og sími - 2010/07/28 15:10 Þakka þér svarið Sigurður, hef tengt tækið og prófað það heima, þetta virkar ok, en það var mun snúnara en ég hélt að tengja þetta og ekki hvað síst að flytja frá tölvunni í sjónvarpið ( upplausnin þarf að vera mjög lítil til að sjónvarpið skilji myndina).
Þeir hjá símanum eru með box fyrir símann sem sést á heimasíðunni þeirra undir tölvusími. Kostar 14.900,- en engin mánaðar áskrift og kostar 0 kr. í heimasíma. Sér fyrir gsm. Þeir sem hringja í símann eru að greiða fyrir símtalið eins og þeir væru að hringja í hvert annað ísl. símanúmer.
Þetta er ekki lengi að borga sig upp.

Vona ég að sem flestir kynni sér málið og prófi þetta heima því málið er ekki bara að stinga í samband.
Kær kveðja KK.
  Notendur verða að skrá sig inn til að geta skrifað í spjallið.
Grímur Leifsson
Notandi

Byrjandi
Skilaboð: 1
graphgraph
Álit: 0  
Smelltu hér til að sjá upplýsingar um þennan notanda
Re:Sjónvarpsstöðvar að heiman og sími - 2010/07/30 08:05 Ég er einn af þeim var með íslenska sjónvarpið.
Er einhver komin með reynslu af nýju tækninni sem Sigurður var að segja okkur frá.
Kveðja Grímur Leifs.
  Notendur verða að skrá sig inn til að geta skrifað í spjallið.
Kristján Kristjánsson
Notandi

Alvöru spjallari
Skilaboð: 37
graphgraph
Álit: 23  
Smelltu hér til að sjá upplýsingar um þennan notanda
Re:Sjónvarpsstöðvar að heiman og sími - 2010/08/21 11:06 Sæll þar sem enginn hefur svarað þér, þá vildi ég koma því á framfæri að ég lét tölvuviðgerðarfyrirtæki tengja saman mína fartölvu og slingboxið, síðan flutti hann með snúru myndina í sjónvarp (flatskjáir eru bestir varðandi þetta að sögn) og viti menn allt virkaði fínt. Ég gerði síðan slíkt hið sama heima hjá mér og allt virkar vel.
Tel ég að ekkert sé því til fyrirstöðu að þetta virki jafnvel á Spáni. Nettenging þarf örugglega að vera nokkuð góð.
Ég vísa á góða umfjöllun og fræðslumynd um þetta mál á síðunni Spain Casa, sem einmitt auglýsir sig hér á síðu fhs.is, efst hægra megin við veðrið, undir sjónvarpsmál.

Ljóst er að þetta er ódýr og góð lausn og notuð víða um heim, endilega að sjá fræðslumyndina.
Kveðja Kristján

Svar breytt af: bygg987, þann: 2010/08/21 11:14
  Notendur verða að skrá sig inn til að geta skrifað í spjallið.
Þorsteinn Eyjólfsson
Notandi

Byrjandi
Skilaboð: 2
graphgraph
Álit: 0  
Smelltu hér til að sjá upplýsingar um þennan notanda
Re:Sjónvarpsstöðvar að heiman og sími - 2010/08/30 10:18 Góðan daginn,
Ég var að kaupa mér Slingbox og það gengur ekkert að tengja það ,er með það hjá dóttir minni sem er í þjónustu hjá Símanum ...hjá hvaða tölvufyrirtæki fékkst þú aðstoð?
Bestu kv.Jóna
  Notendur verða að skrá sig inn til að geta skrifað í spjallið.
<< Byrja < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>