Sigurður Þ. Ragnarsson
Stjórnandi
 Stjórnandi
| Skilaboð: 71 |   | Álit: 6
|
Re:flugsæti - 2010/02/26 19:15
Sæl öll.
Gaman að finna þennan mikla áhuga sem er á haustfluginu. Eina sem við í stjórninni getum beðið ykkur um á þessari stundu er að sýna þessu örlitla biðlund. Sumarið kom inn um síðustu helgi og við í stjórninni erum búinn að biðja um að þessu verði flýtt sem kostur er. Rétt er að hafa í huga að Iceland Express er eitt á markaði og þarf að setja niður fyrir sér brottfarardaga áður en hægt er að setja þetta inn á vefi ferðaskrifstofanna. Það ætti að gerast alveg von bráðar.
Þá finnst okkur í stjórninni gaman að finna þann skilning sem fólk virðist hafa á því að við stöndum saman um samningsbundna flugið okkar því þannig styrkjum við stöðu okkar gagnvart samningsaðilum í framtíðinni.
Bestu kveðjur, Sigurður Þ. Ragnarsson varaformaður
|