OOPS. Your Flash player is missing or outdated.Click here to update your player so you can see this content.

Félagsmenn

Forsíða

Spjalltorg

heimsenda svarSiðareglurhjálp
 
Bjarni Magnússon
Notandi

Virkur spjallari
Skilaboð: 11
graphgraph
Álit: 3  
Smelltu hér til að sjá upplýsingar um þennan notanda
Vélhjól (Vespur) - 2009/04/02 22:08 Langar til að vita hvort einhver liggur á upplýsingum um eign á vespu.

Þar á ég einkum við tryggingar,skoðunartíðni eða aðra hluti sem geta komið sér vel að vita.

Til dæmis held ég að árið 2008 hafi verið gerðar einhverjar breytingar er varða skoðunartíðni eftir vélarstærð.

Með fyrirfram þökk
geti einhver veitt einhverjar upplýsingar.
  Notendur verða að skrá sig inn til að geta skrifað í spjallið.
Sveinn Arnar Nikulásson
Stjórnandi

Stjórnandi
Skilaboð: 34
graphgraph
Álit: 8  
Smelltu hér til að sjá upplýsingar um þennan notanda
Re:Vélhjól (Vespur) - 2009/04/03 12:18 Tryggingar á skellinöðrur (sem og þessar svokölluðu vespur) með 50cc mótor og minni kosta gjarnan u.þ.b. 170 € á ári samkvæmt upplýsingum frá Knight tryggingamiðlun í La Zenia. Þegar um er að ræða mótorhjól með stærri en 50cc mótor er ársiðgjald um 250 €. Í báðum tilfellum voru tekin dæmi um tryggingartaka um þrítugt, með a.m.k. tíu ára ökuskírteini. Til að fá frekari upplýsingar hjá Knight má ýmist hringja í síma 966 760 037 eða skrifa tölvupóst á orihuelacosta@knight-insurance.com

Varðandi mismunandi skoðanatíðni á mótorhjólum eftir vélarstærð, þá er það þannig að mótorhjól stærri en 50cc þurfa ekki að fara í skoðun fyrr en eftir fjögur ár frá nýskráningu. Síðan þarf að færa þau til skoðunar á tveggja ára fresti. Skellinöðrurnar, minni en 50cc, þurfa að fara með í skoðun eftir tvö ár frá nýskráningu og svo á tveggja ára fresti. Það má því segja að skoðanatíðnin sjálf sé hin sama, hver sem vélarstærðin er. Verð fyrir skoðun á mótorhjólum er 24,25 €. Svona í leiðinni er upplýst að opnunartími skoðanastöðvanna er örlítið mismunandi eftir staðsetningu. Í Torrevieja er hún opin frá kl. 8:00 til 21:00 (engin siesta) á virkum dögum. Á laugardögum frá kl. 8:00 til 13:00. Í Pilar de la Horadada er hún opin frá kl. 9:30 til 19:00 (siesta milli 14:00 og 16:00) á virkum dögum. Á laugardögum frá kl. 9:30 til 13:00. Í San Bartolomé, Orihuela er hún opin frá kl. 8:00 til 22:00 (engin siesta) á virkum dögum og á laugardögum frá kl. 8:00 til 13:00.

Kveðja,
Sveinn Arnar.
  Notendur verða að skrá sig inn til að geta skrifað í spjallið.
Bjarni Magnússon
Notandi

Virkur spjallari
Skilaboð: 11
graphgraph
Álit: 3  
Smelltu hér til að sjá upplýsingar um þennan notanda
Re:Vélhjól (Vespur) - 2009/04/03 21:16 Þakka kærlega fyrir veittar upplýsingar. Og rétt að segja voru þær sneggri en ég ætlaði. Þakka þér aftur kærlega fyrir Sveinn Arnar.
  Notendur verða að skrá sig inn til að geta skrifað í spjallið.