|
|
Forsíða
Leigusetrið Listi fasteigna
Yfirlit > 2 Svefnherbergja íbúð > Falleg og rúmgóð íbúð í Torrevieja
![]() Íbúð á efri hæð með sólþaki
60m2 íbúð með 2 svefnherbergjum og sólþaki. Sundlaug í læstum garði. Stutt í alla þjónustu,
Tegund: 2 Svefnherbergja íbúð
Íbúð á frábærum stað í Torrevieja á Spáni. Miðsvæðis og göngufæri í alla þjónustu, miðbæ Torrevieja og á ströndina.
Íbúðin er á efrihæði í raðhúsi. Hún er 60 m2 með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum, hjónarúmmi og tveimur rúmum og góðir fataskápar í báðum herberjunum. Rúmgóð stofa með sófasetti og gerfihnattarsjónvarpi. Í baðherberginu er baðkar með sturtu. Í eldhúsinu er ísskápur með frystihófli, eldavél með bakarofni, örbylgjuofn og borðbúnaður fyrir 6 manns. Á sólþakinu er borð með 4 til 8 stólum. Þrír sólbekkir með dýnum. Sameiginleg sundlaug í læstum garði auk barnasundlaugar. Handklæði, tuskur og viskustykki eru til staðar. Gestir þurfa að koma með sín eigin strandhandklæði. Stutt í alla þjónustu. Aðeins 10 mín. gangur er í miðbæ Torrevieja þar sem markaður er alla daga vikunnar og tívolí. Ca. 20 mín. gangur á stöndina og vatnsrennibrautargarður (Aquopolis) í um 15 mín. göngufæri. Verslanir og föstudagsmarkaðurinn er í 5-10 mín. göngufæri. Habaneras ein stærsta verslunarmiðstöð á Costa Blanca er í ca. 10 mín. göngufæri, en þar er verslanir eins og Zara, HM, A&C, Intersport og fl. o.fl. Frá flugvellinum í Alicante er aðeins 35 mín. keyrsla.
Meiri upplýsingar
Íbúð í Torrevieja frábær staðsetning þar sem allt er í göngufæri svo sem Habaneras einn stærsti verslunarkjarni á costa blanca 10 min. gangur. Um 8 mín. gangur á föstudagsmarkaðinn. Vatnsrennibrautargarður er í um 15 mín. göngufæri. Um 10 mín. tekur að ganga í miðbæ Torrevieja og 20 á ströndina.Næsta borg: Alicante Fjöldi svefnherb.: 2 Svefnpláss fyrir: 4-6 Fjöldi baðherb.: 1 Sumarverð pr. vika: €350.- 15. Maí - 14. Sept, Vetrarverð pr. vika: €200,- 1. Nóv - 1. Mars Verð vor og haust / hátíðar: €300,- 1. Mars - 14. Maí og 15. Sept. - 31 Okt., Jól og Páskar, pr. vika Ástand húsnæðis: Nýlegt eða vel uppgert húsnæði Annað:
Leigusali
Senda fyrirspurn
|