|
|
Forsíða
Leigusetrið Listi fasteigna
Yfirlit > Raðhús / parhús > Playa Flamenca
![]() Húsið að framan
Tegund: Raðhús / parhús
Quattro-hús í lokuðu hverfi í Playa Flamenca. Íbúðin er á einni hæð og er með stofu með svefnsófa, vel innréttuðu eldhúsi, 2 svefnherbergjum og baðherbergi. Út af eldhúsi er gengið inn í þvottaherbergi. Fyrir framan húsið er stór fullglerjuð verönd og yfir öllu húsinu eru stórar flísalagðar þaksvalir með gasgrilli, garðhúsgögnum og sólbaðsaðstöðu. Sameiginleg fín sundlaug er í hverfinu. Um 5-10 mínútna gangur er niður á strönd. Fyrir utan hverfið er verslunarkjarni C.C. Playa Flamenca þar sem finna má ótal veitingastaði, bari og kaffihús. Næsta bygging við er önnur verslunarmiðstöð með stóra matvöruverslun, banka, kaffihús og veitingastaði. Um 10 mínútna akstur er á fjóra golfvelli, Villamartin, Campoamor, Las Ramblas og Lo Romero. Svefnpláss er fyrir 4-6. Gervihnattasjónvarp með Ríkissjónvarp er í íbúðinni. Loftkæling er í öllum herbergjum. Fram í þvottaherberginu er aukaísskápur fyrir drykkjarföng. Í eldhúsinu er sérkrani með síu fyrir drykkjarvatn.
Upplýsingar: lorya_bjork@hotmail.com
Meiri upplýsingar
Quattro-hús í lokuðu hverfi í Playa Flamenca. Íbúðin er á einni hæð og er með stofu með svefnsofa, vel innréttuðu eldhúsi, 2 svefnherbergjum og baðherbergi.Næsta borg: Torrevieja Fjöldi svefnherb.: 2 Svefnpláss fyrir: 4-6 Fjöldi baðherb.: 1 Sumarverð pr. vika: €ISK 35.000.-.- 15. Maí - 14. Sept, Vetrarverð pr. vika: €ISK 35.000.-,- 1. Nóv - 1. Mars Verð vor og haust / hátíðar: €ISK 35.000.-,- 1. Mars - 14. Maí og 15. Sept. - 31 Okt., Jól og Páskar, pr. vika Ástand húsnæðis: Nýlegt eða vel uppgert húsnæði Annað:
Leigusali
Senda fyrirspurn
|