OOPS. Your Flash player is missing or outdated.Click here to update your player so you can see this content.

Félagsmenn

Könnun

Ertu fylgjandi því að banna alfarið nautaat á Spáni, líkt og Katalóníumenn hafa gert?
 
Forsíða
Ný og glæsileg þota Heimsferða
Höfundur Gísli Breiðfjörð Árnason   
miðvikudagur, 18 apríl 2007

primera_iiPrimera flugfélagið, sem er í eigu ferðaskrifstorunnar Heimsferða fékk sína fyrstu flugvél sem er nánast alveg ný þota af gerðinni Boing 737-800 og tekur 189 farþega.  Vélin er einkar glæsileg og búin fullkomnustu tækjum sem völ er á.  Meðal búnaðar í vélinni, sem farþegarnir munu vafalaust kunna vel að meta, eru mjög vönduð og þægileg leðursæti.  Þá er afar fullkomið sjónvarpskerfi í vélinni, sem mun án efa stytta farþegum stundirnar á meðan á flugi stendur.  Vélin verður notuð í samningsflugi Heimsferða og FHS í sumar, en flugið hófst um s.l. Páska og verða nokkrar ferðir fram 9. maí, en frá 24. maí og til 1 nóvember hefst vikulegt flug á milli Keflavíkur og Alicante.  Flogið verður í morgunflugi frá Keflavík kl.06:30 og lent í Alicante kl.12:30 að staðartíma.  Heimflugið frá Alicante hefst kl.13:30 og lent í Keflavík kl.15:50.  FHS félagar munu án efa kunna vel að meta þennan góða flugtíma þ.e. að vera kominn til Alicante í hádeginu og að heimflugið lendi í Keflavík um miðjan dag.  Áhöfn í farþegarými nýju þotunnar mun öll verða íslensk. 

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 18 apríl 2007 )
 
Miklar hækkanir á flugsætum til Alicante
Höfundur Gísli Breiðfjörð Árnason   
sunnudagur, 15 apríl 2007

thumb_airbusGríðarlegar hækkanir hafa orðið á verði á flugsætum á milli Íslands og Alicante á Spáni frá því í fyrra.  Bendir margt til þess að samstarf ferðaskrifstofanna Sumarferða, Plúsfera og Úrvals Útsýnar og flugfélagsins Iceland Express, sé helsta ástæða þessarar miklu hækkunar.  Ekki er hægt að skýra þetta háa verð á flugsætum til Alicante með háu olíuverði, en verð á olíu nú er mun lægra en það var í fyrra.  Miðað við lauslega könnun á netsíðum þessara fyrirtækja, virðast flugsæti með brottfarir í maí og júní vera um eða yfir kr.40.000.- fyrir manninn.  Það eru greinilega fleiri en við í stjórn FHS, sem höfum áhyggjur af þessari þróun.  Netsíðan gostablanca.is hefur verið með könnun í gangi þar sem spurt er hvort fólk telji samstarf á flugleiðinni milli Islands og Alicante vera af hinu góða og eru niðurstöður áhugaverðar.  Ef fólk hefur einhverja skoðun á þessum málum þá er það hvatt til þess að greiða athvæði á netsíðu Costablanca.is   Stjórn FHS er að kanna nýjar leiðir til þess að viðhalda samkeppni á þessari flugleið og verða þau mál kynnt nánar, þegar niðurstöður liggja fyrir. 

 
Kalt á Spáni um Páskana
Höfundur Gísli Breiðfjörð Árnason   
laugardagur, 14 apríl 2007

thumb_snjokarlarTöluverður kuldi var á Torrevieja svæðinu um Páskana og hafa FHS félagar, sem fóru í Páskaferðina ekki farið varhluta af því.  En nú mun þó vera orðin breyting á og farið að hlýna, enda fer sumarið senn að koma þarna niður við Miðjarðarhafið.  Páskaferðin var fyrsta ferðin í samningsflugi FHS og Heimsferða og verður farið að fljúga vikulega frá 24. maí. 

 
Íslensk messa í Torrevieja
Höfundur Gísli Breiðfjörð Árnason   
fimmtudagur, 29 mars 2007

 

Laugardaginn 5. maí verður messa í norsku sjómannakirkjunni í Torrevieja.(c/Ravel 4, Urb. La Siesta.)    Séra Ragnheiður Karítas Pétursdóttir þjónar fyrir altari og sungnir verða íslenskir sálmar.  Íslensk börn búsett á Spáni  munu taka þátt í messunni.  Messan hefst klukkan 16:00.  Eftir messu verður hægt að kaupa kaffi og meðlæti í kaffiteríu kirkjunnar og eiga stund saman. Vona ég að sem flestir komi í hús Drottins,til að syngja saman og eiga samfélag í trú og gleði. Guð gefi ykkur öllum góðar stundir,                                                                   Ragneiður Karítas Pétursdóttir

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 17 apríl 2007 )
 
Fréttatilkynning frá Perla invest
Höfundur Sigurjón H Sindrason   
fimmtudagur, 15 mars 2007

100% lán – bankaábyrgð á öllum greiðslum  Perla Investments, hefur opnað skrifstofu á Íslandi að Grensásvegi 13, 2 hæð. Reykjavík.  Perla leggur metnað sinn í framúrskarandi og persónulega þjónustu sem sniðin er að þörfum hvers og eins.Við erum til staðar fyrir þig frá fyrsta degi.  Aðstoðum þig á íslensku við allt er varðar fasteignakaup þín, lántöku, útleigu, viðhald, nú eða kaup bátaskýlis eða blæjubíls.   Með 10 ára reynslu af fasteignaviðskiptum á Spáni og þrautþjálfað fagfólk með áratuga reynslu sem hjálpað hefur fjölda landsmanna að finna draumahúsið, góða fjárfestingu eða sitt annað heimili í sólinni, tryggjum við þér þjónustu sem á engan sinn líka.Hvort sem þú ert að leita að nýrri íbúð eða gömlu sveitasetri, erum við hjá Perla þess fullviss að geta boðið þér eignina sem þú ert að leita að. Kaupferlið hefst um leið og þú hefur samband við okkur eða ákveður að koma í skipulagða skoðunarferð.  Við veitum þér allar upplýsingar er varða verðlag, fjármögnun, lagaleg atriði og kaupferlið sjálft.  Allt er varðar fasteignakaup þín, búferlaflutninga og lífsgæði þín í nýju landi er í öruggum höndum fagaðila frá fyrstu stundu.   Við sjáum um viðskipti þín og veitum alla þjónustu á íslensku svo þú þurfir aldrei að vera í vafa um hvar kaupin eru stödd í ferlinu.  Sjáum til þess að kaup þín verði áreynslulaus og ánægjuleg frá fyrstu kynnum. Við erum hér – fyrir þig Kær kveðja,  Perla Investments

Síðast uppfært ( sunnudagur, 18 mars 2007 )
 
Loksins beintenging við bílaleigu
Höfundur Bjarni Jarlsson   
mánudagur, 12 mars 2007

Loksins hefur tekist að tengja bókunarvef Europa Goldcar bílaleigunnar við vefinn okkar.Europa logo

Á innrivef skal velja "Flug og bíll " og þaðan velja "Bílaleigur".

Það sem þarf að huga að, þegar byrjað er að bóka bíl er að hafa við hendina:

vegabréf, ökuskírteini og flugupplýsingar. 

 

 

 

 

 

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 20 mars 2007 )
 
Góð bókunarstaða í fluginu
Höfundur Gísli Breiðfjörð Árnason   
laugardagur, 10 mars 2007
Samkvæmt upplýsingum frá ferðaskrifstofunni Heimsferðum kemur fram að bókunarstaða félagsmanna er mjög góð miðað við að einungis eru rúmlega 2 mánuðir liðnir af árinu.  Með sama áframhaldið stefnir í mjög gott ferðaár hjá félagsmönnum og fólki á þeirra vegum.
Síðast uppfært ( laugardagur, 10 mars 2007 )
Lesa meira...
 
Fréttatilkynning frá Evesta
Höfundur Gísli Breiðfjörð Árnason   
miðvikudagur, 07 mars 2007

Evesta er íslenskur ferðavefur sem sérhæfir sig í markaðssetningu á skammtíma leiguhúsnæði út um allan heim. Við fáum þúsundir ferðamanna til okkar daglega í leit að gistingu fyrir fríið og okkur vantar fleiri góðar eignir á skrá á Spáni vegna mikillar eftirspurnar!
Skráning á www.evesta.is kostar aðeins 19.900 kr fyrir 12 mánuði. Hver skráning er heil vefsíða með ótakmörkuðum fjölda mynda, verðtöflu í fjölmörgum myntum, dagatal sem sýnir útleigutímabil og margt fleira.
Við bjóðum öllum félagsmönnum FHS 10% afslátt á skráningargjaldinu til 31.mars. Lestu meira um þjónustu Evesta fyrir húseigendur http://www.evesta.is/kynningarefni/evesta_huseigendur.pdf

Síðast uppfært ( fimmtudagur, 08 mars 2007 )
 
Nýr vefur FHS
Höfundur Gísli Breiðfjörð Árnason   
þriðjudagur, 27 febrúar 2007

Nú er loksins búið að koma í loftið nýjum vef Félags húseigenda á Spáni.  Ýmsar nýungar eru að finna á vefnum, sem eru hugsaðar til hagsbóta fyrir félagsmenn eins og t.d. nýtt og fullkomnara  leigusetur, þar sem boðið er upp á möguleika á að setja inn myndir og meiri upplýsingar um eignirnar. Ekki var hægt að færa upplýsingarnar af gamla leigusetrinu yfir á það nýja og þurfa félagsmenn því að slá upplýsingarnar inn að nýju.

Jafnframt var hannaður Leiguverðreiknir, sem var hugsaður til að samræma og auðvelda alla verðlagningu á leiguhúsnæði, en mjög mikið ósamræmi hefur verið á verðlagningu á leiguhúsnæði til þessa. 

 Þá verðum mun auðveldara fyrir stjórnina að koma upplýsingum á framfæri við félagsmenn bæði með póstlistanum og einnig á heimasíðunni.

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 27 febrúar 2007 )
 
Nýtt útlit, nýr aðgangur
Höfundur Sigurjón H Sindrason   
sunnudagur, 25 febrúar 2007

FHS vefurinn er núna kominn með nýtt útlit

 

Til þess að félagsmenn geti skráð sig inn þurfa þeir að smella hér . Þegar komið er inn á það svæði, þarf að slá inn FHS númerið, það sem stendur á skírteininu, og eftir það komast menn inn til að breyta notendaupplýsingum þar má velja notendanafn sem verður að vera samfellt nafn og lykilorð.

 

Þetta notendanafn og lykilorð þarf síðan að nota til að komast inn á 'innri vef' til að geta bókað flug til dæmis...

 

 

Síðast uppfært ( sunnudagur, 25 febrúar 2007 )
 
<< Byrja < Fyrri 41 42 43 44 45 46 47 Næsta > Endir >>

Úrslit 451 - 460 af 462