|
Notendaskilmálar
heimasíðu FHS
1. Heimasíðan
www.fhs.is er rekin af Félagi húseigenda á Spáni og gilda
þessir notendaskilmálar um notkun á vefnum www.fhs.is og öllum tengdum lénum og undirsíðum. Með því að ljúka innskráningu staðfestir þú
að þú hafir skilið skilmála þessa og samþykkir þá.
2. FHS
áskilur sér rétt til að loka eða rifta þjónustu sem félagið veitir, án þess að
sá sem notar þjónustuna eða þriðji aðili öðlist með því rétt til skaðabóta.
3. Notandi
fær notendanafn og lykilorð við nýskráningu. Við innskráningu á síðuna www.fhs.is samþykkir notandi skilmála þessa. Notandi ber fulla ábyrgð á því sem það
notendanafn gerir á www.fhs.is eða tengdum
lénum.
4. Notandi
ber fulla ábyrgð á öllum skrifum, myndbirtingum, myndbandabirtingum og öðru
efni sem hann birtir á síðu félagsins.
5. FHS ber
ekki ábyrgð á að þjónustan standist ákveðnar kröfur notanda eða að hún sé
ávallt virk.
6. FHS ber
ekki ábyrgð á þeim gögnum sem glatast.
7. Auglýsingasendingar
á netföng félagsmanna eru óheimilar í gegnum síðu FHS.
8. Notandi
samþykkir að miðla ekki ólöglegu efni eða nokkru öðru er veldur skaða. Ennfremur
að hafa ekki í hótunum, áreita eða særa með skrifum sínum. Stjórn FHS hefur úrslitavald
komi upp ágreiningur varðandi það.
9. Ef
notandi gerist brotlegur við reglur þessar verður aðgangi hans að heimasíðu FHS,
www.fhs.is, lokað.
|