OOPS. Your Flash player is missing or outdated.Click here to update your player so you can see this content.
Forsíða arrow Um FHS arrow Starfsmaður FHS á Spáni
Starfsmaður FHS á Spáni PDF Prenta Tölvupóstur
Höfundur Administrator   
miðvikudagur, 07 febrúar 2007

sveinn-arnarKæru félagsmenn og aðrir áhugasamir.


Sveinn Arnar Nikulásson heiti ég og er starfsmaður Félags húseigenda á Spáni. Tók ég við starfinu þann 15. október 2003. Hef ég verið búsettur á Spáni síðan í nóvember 1999.

Verksvið starfsmanns gagnvart stjórn félagsins og félagsmönnum

  • Svara í þjónustusíma félagsins allan sólarhringinn vegna neyðartilfella.
  • Semja í samráði við stjórn við 3 – 5 þjónustuaðila varðandi almenna þjónustu sem og neyðaraðstoð.
  • Veita félagsmönnum upplýsingar á skrifstofutíma, þ.e. frá kl. 9 – 17 virka daga.
  • Vera tengiliður milli dvalargesta og ferðaskrifstofanna sem samningar eru við hverju sinni.
  • Hafa umsjón með og uppfæra upplýsingamöppu félagsins (Handbók húseigenda).
  • Vera stjórn félagsins innan handar varðandi mál sem gerast á Spáni.

 

Búseta, sími og netfang

Ég bý í Playa Flamenca, Orihuela Costa (u.þ.b. 5 km suður af Torrevieja).

Þjónustusími félagsins Spáni er (0034) 619 612 313.


Einnig hef ég netfangið Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 

Ennfremur starfa ég sjálfstætt við útleigu húsa, umsjón og sölu, sem og almennri aðstoð, s.s. útvegun bílaleigubíla, akstur og túlkun. Allar upplýsingar um það má sjá á vefsíðu á slóðinni http://www.orlofshuscostablanca.com og netfangið er Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 

Endilega verið ófeimin við að hafa samband ef eitthvað er.


Kveðja,

Sveinn Arnar.

 

Síðast uppfært ( fimmtudagur, 21 janúar 2010 )