OOPS. Your Flash player is missing or outdated.Click here to update your player so you can see this content.
Forsíða arrow Um FHS arrow Lög FHS
LÖG FÉLAGS HÚSEIGENDA Á SPÁNI PDF Prenta Tölvupóstur
Höfundur Administrator   
mánudagur, 22 janúar 2007

1 gr.

Félagið heitir Félag húseigenda á Spáni. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.

2 gr.

Tilgangur félagsins er að vinna að sameiginlegum hagsmuna- og áhugamálum húseigenda á Spáni, efla samheldni þeirra, stuðla að sem hagstæðustu ferðum milli Íslands og Spánar og koma fram fyrir hönd félagsmanna í samningum.

3. gr.

Félagsmenn geta þeir orðið sem eiga eða hyggjast eignast húsnæði á Spáni. Stjórnin skal halda skrá yfir félaga og fasteignir.

4 gr.

a) Stjórn félagsins skipa fimm menn og tveir til vara. Formaður skal kosinn beinni kosningu,

 

b) Kjósa skal fjóra stjórnarmenn og tvo til vara, að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Framboð til stjórnarkjörs þarf að berast stjórninni eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.

5 gr.

a) Aðalfundur félagsins skal haldinn í febrúarmánuði ár hvert og skal boða til hans með minnst tíu daga fyrirvara. Á aðalfundi skulu mál tekinn fyrir og rædd í eftirfarandi röð.


1. Kosning fundarstjóra og fundarritara

2. Skýrsla stjórnar 

3. Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar félagsins

4. Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikninga

5. Kosning formanns

6. Kosning fjögurra manna í aðalstjórn

7. Kosning tveggja manna í varastjórn.

8. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga

9. Tekin ákvörðun um árgjald í félaginu

10. Lagabreyttingar

11. Önnur mál


Aðalfundur er lögmætur sé löglega til hans boðað og hann sækja 10% félagsmanna eða umboðsmenn þeirra. Atkvæðis- og kosningarrétt á aðalfundi hefur sá sem hefur gilt félagsskírteini og skuldar ekki árgjöld í félaginu. Í tilvikum þar sem félagasamtök eða nokkrir einstaklingar eiga saman húseign á Spáni og greiitt er eitt árgjald, þá gildir eitt atkvæði fyrir hópinn. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum mála annarra en lagabreytinga.

 

b) Mæti aðili sem ekki er í félaginu til aðalfundar í umboði félagsmanns, í þeim tilgangi að fara með atkvæðisrétt hans, skal aðilinn hafa skriflegt undirritað umboð félagsmannsins, vottað af tveimur fullgildum vottum. Hann skal framvísa umboðinu við fundarstjóra áður en atkvæðagreiðsla fer fram.

 

6 gr.

Lagabreytingar fara aðeins fram á aðalfundi og skulu þær hafa verið boðaðar á dagskrá fundarins.  Þær þurfa því að hafa borist stjórn tímanlega fyrir boðun aðalfundar.

Lagabreytingar þurfa 2/3 hluta greiddra atkvæða til að öðlast gildi.

7 gr.

Aukafund skal boða svo oft sem þurfa þykir. Um boðun, lögmæti og atkvæðisrétt gilda sömu reglur og um aðalfund.

 

8 gr.

Berist stjórn félagsins skrifleg tillaga frá minnst 10% félagsmanna um að félaginu verði slitið ber stjórninni að boða til sérstaks fundar um tillöguna innan tveggja mánaða frá móttöku tillögunnar. Skal boðað til slíks fundar með sama hættiog til aðalfundar félagsins og skal tillagan fylgja fundarboði. Um lögmæti fundarins og ályktunarbærni fer sem mælt er fyrir um í 2. mgr. 5. gr. félagslaga.

 

Á fundinum skal slík tillaga sæta meðferð eins og tillaga um lagabreytingu í félaginu, sbr. 6. gr. félagslaga. Til samþykktar á slíkri tillögu þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða. Sé slík félagsslitatillaga samþykkt skal fara með skiptin að hætti laga nr. 20/1991, um skipti á dánarbúum o.fl., eftir því sem við á, einkum XV. kafla laganna. Félagsfundur sem samþykkir með lögmætum hætti að félaginu skuli slitið skal jafnframt ákveða hvernig þeim eignum félagsins skuli ráðstafað, sem eftir kunna að standa þegar gerðar hafa verið upp allar skuldir félagsins og kostnaður við skiptin.


Samþykkt á aðalfundi félagsins þann: 24/2 2001

Lagabreyting samþykkt á aðalfundi 4. febrúar 2006 GBÁ

Lagabreytingar samþykktar á aðalfundi 6. febrúar 2010  SÞR 

Síðast uppfært ( sunnudagur, 07 febrúar 2010 )