|
Stjórnir félagsins hverju sinni halda fundi svo oft sem þurfa þykir auk aðalfunds sem samkvæmt lögum félagsins skal halda í febrúar ár hvert. Þá sendir stjórnin fréttabréf í pósti þegar koma þarf áríðandi upplýsingum til félagsmanna eins og fundardagskrá á aðalfundi eða upplýsingum um að flugsamningur hafi verið undirritaður eða eitthvað annað sem nauðsynlegt er að kynna.
|