OOPS. Your Flash player is missing or outdated.Click here to update your player so you can see this content.

Félagsmenn

Könnun

Saknarðu að geta ekki horft lengur á RÚV í gegnum gervinhnttadisk á Spáni?
 
Forsíða
Skógareldar á Torrevieja svæðinu
Höfundur Gísli Breiðfjörð Árnason   
föstudagur, 30 júlí 2010
skogareldarSlökkviliðin á Torrevieja svæðinu voru kölluð út fjórum sinnum á þremur dögum nú í vikunni, vegna skógarelda.  Á mánudagskvöld var tilkynnt um mikin skógareld inn á Villa Martin golfvallarsvæðinu, nánar tiltekið á svæði sem heitir Calle Canón Hills.  Skökkvilið Torrevieja borgar þurfti að koma til aðstoðar og þurfti að nota tvær þyrlur til að ráða niðurlögum eldsins. Rannsókn á eldsupptökum leiddi í ljós að eldurinn hafi að öllum líkindum kviknað af mannavöldum og líklegast verið kveiktur af ásettu ráði. Miklir þurkar hafa verið á þessu svæði og allur gróður mjög þurr og því þarf lítið til að eldar kvikni, ef ekki er farið gætilega.
 
Opnugrein um Torreviejasvæðið í DV í dag
Höfundur Sigurður Þ. Ragnarsson   
föstudagur, 23 júlí 2010
dv-umfjollun-torrevieja Í DV í dag, 23. júlí,  er opnugrein um Íslendingabyggðirnar á Torreviejasvæðinu, Rætt er m.a. við starfsmann FHS, Svein Arnar Nikulásson auk fleirri sem þarna ýmist búa, nú eða dvelja í lengri eða skemmri tíma. Greinin er hugsuð til að fá innsýn í daglegt líf Íslendigna á svæðinu og velt upp þeirri spurningu hvað það er sem dregur svo marga Íslendinga til þessa svæðis. 
 
Haustferð 5. til 10. október nk.
Höfundur Sveinn Arnar Nikulásson   
fimmtudagur, 22 júlí 2010
merida

CASTILLA-LA MANCHA og EXTREMADURA

Nú höldum við til vesturhluta Spánar með viðkomu í sjálfstjórnarhéraðinu Castilla-La Mancha og fetum í fótspor hins sögufræga riddara DON QUIJOTE.  Fylgjum við ferðaleið hans til sjálfstjórnarhéraðsins EXTREMADURA, sem liggur að landamærum Portúgal. Er það sögufrægt frá tímum Rómverja og reyndar það hérað sem hefur að geyma mestu arfleiðar þeirra.

Á fyrsta degi verður ekið í gegnum Murcíuhérað til Hellín og þaðan tekin stefna á VALDEPEŇAS. Gist verður í bænum ALMAGRO í Castilla-La Manchahéraði fyrstu nóttina. Á öðrum degi höldum við til MÉRIDA, höfuðborgar EXTREMADURA, þar sem við dveljum í þrjár nætur. Á þeim dögum verða m.a. hinar rómversku minjar skoðaðar. Heimsækjum við borgirnar CÁCERES og TRUJILLO ásamt því að skoða hið stórkostlega náttúruumhverfi héraðsins. Á fimmta degi höldum við til TOLEDOborgar í Castilla-La Mancha, þar sem við munum gista eina nótt og skoða borgina.

Verð á mann í tvíbýli: 720 evrur.
Verð á mann í einbýli: 955 evrur.

Innifalið í verði:
- Gisting á fjögurra stjörnu Parador hótelum.
- Morgun- og kvöldverðir.
- Rútuferðir og leiðsögn.
Ath. Aðgangseyrir að rómversku minjunum er ekki innifalinn.

Skrá þarf þátttöku eigi síðar en 30. ágúst nk. í síma 608 966 327 eða í tölvupóst Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það . Staðfesta þarf ferðina með greiðslu á helmingi fargjaldsins.

Með kveðju,
Ágústa Pálsdóttir.

 
Vasaþjófar á ferð
Höfundur Gísli Breiðfjörð Árnason   
mánudagur, 19 júlí 2010

thumb_vasajofnadurFréttablaðið RTN news greindi frá því í síðasta hefti, að margir aðilar hafi sett sig í samband við blaðið og tilkynnt um að nokkuð mikið bæri á vasaþjófnuðum á svæðinu í kring um Torrevieja.  Þetta gerðist helst í matvöruverslunum sem ekki væru með öryggismyndavélakerfi.  Tilgreindu þeir verslanir Mercadona í Sam Luis og Los Balcones og verslanir Lidl í Playa Flamenca og Torrevieja og einnig verslun Terretlas í Torrevieja. 

Þjófarnir séu ýmist einir eða með öðrum þegar þeir létu til skarar skríða.  Notuðu þeir þá aðferð að vera með poka í báðum höndum, eða með hendi í fatla og óskuðu aðstoð fólks að ná í ákveðna vöru í hillu í versluninni.  Þjófurinn færi svo ofan í tösku eða vasa og taki veski eða önnur verðmæti þegar fórnarlambið væri að teygja sig í umrædda vöru.  Fólk er því hvatt til að fara varlega.

 
RÚV áfram á Spáni
Höfundur Sigurður Þ. Ragnarsson   
miðvikudagur, 14 júlí 2010

sjonvarpshleLíkt og fram hefur komið breytti RÚV gervihnattasendingum sínum fyrir nokkru með þeim afleiðingum að þeir sem keypt höfðu sér móttökudisk til þess að sjá stöðina sjá hana nú hvergi.

Til er önnur leið til að sjá alla dagskrá RÚV.......

Sjá nánar á innri vef FHS

 
HM stemning á Spáni
Höfundur Sveinn Arnar Nikulásson   
fimmtudagur, 08 júlí 2010

spnn_hmMikil stemning er nú á Spáni vegna sigurs Spánverja á Þjóðverjum í undanúrslitum heimsmeistarakeppninnar í fótbolta í gærkvöldi. Spánverjar sýndu töluverða yfirburði í leiknum og var 1-0 sigur mjög verðskuldaður. Sjálfstraustið er nú allsráðandi og eru flestir Spánverjar mjög bjartsýnir á að landslið þeirra muni vinna heimsmeistaratitilinn. Flestar sjónvarpstöðvarnar eru undirlagðar af umfjöllun um leikinn í gær og m.a. mátti lesa af skjánum (lauslega þýtt): „Við étum þýsku bratwurst-ana og kreistum safann úr hollensku appelsínunni“. Mark Puyol, sem og fjölmörg marktækifæri Spánverja, eru endursýnd í erg og gríð í öllum fréttatímum og talað við glaðbeitta Spánverja á götum úti. Einnig er sýnt hvernig kolkrabbar nýtast á Spáni; þ.e. til matargerðar en ekki spádóma.

Úrslitaleikurinn á móti Hollendingum verður á sunnudagskvöldið kemur klukkan hálf níu – klukkan hálf sjö að íslenskum tíma. Eðlilega mun þetta vera þýðingarmesti leikur landsliðsins frá upphafi spænskrar knattspyrnu. Í stærstu borgunum má sjá leikinn á risaskjám úti á torgum og má t.a.m. vænta þúsunda manna að fylgjast með leiknum fyrir utan leikvang Real Madrid, Estadio Santiago Bernabéu. Miðað við hátíðahöldin í gærkvöldi á götum úti í vel flestum borgum Spánar, má sannarlega sjá fyrir sér að allt muni bókstaflega fara á hvolf ef Spánverjar landa titlinum á sunnudagskvöldið.

Þá er bara að mæta tímanlega á einhvern spænskan bar með risaskjá til að upplifa stemninguna með heimamönnum. Viva la Roja!

 
Fundur í dag með forstjóra Plúsferða
Höfundur Gísli Breiðfjörð Árnason   
þriðjudagur, 06 júlí 2010
flugsaetiÍ dag fóru þrír fulltrúar FHS, þeir Gísli B. Árnason, formaður, Sigurður Þ. Ragnarsson, varaformaður og Ragnar Örn Pétursson, meðstjórnandi á fund Þorsteins Guðjónssonar forstjóra Plúsferða.  Ástæða fundarins var vegna þess hve fá flugsæti hafa verið í boði til FHS félaga.  Á fundinum kom fram mikill vilji hjá Plúsferðum að bæta úr þessu vandamáli en stærsta hluti vandans sé ekki að finna hjá þeim.  Jafnframt kom fram að þeir hjá Plúsferðum séu að vinna í því að koma þeim vanda í lag og vonandi að það takist sem fyrst.  Má því búast við því að á allra næstu dögum verði bætt verulega í sætafjölda til FHS.  
 
Sumarútsölurnar að hefjast
Höfundur Gísli Breiðfjörð Árnason   
föstudagur, 02 júlí 2010
sumarutsolurSumarútsölurnar á Spáni eru víða hafnar eða að hefjast.  Á Torrevieja svæðinu eru útsölur víða hafnar og fólk farið að gera mjög góð kaup á ýmiskonar varningi.  Samkvæmt spænskum lögum þurfa útsölurnar að standa í minnst 15.daga og til að mega auglýsa útsölu, þarf varningurinn eða a.m.k. hluti af honum að vera með minnst 50% afslætti.Verslanir sem öllu jöfnu taka við greiðslukortum skulu einnig taka við þeim sem greiðslu fyrir útsöluvarninginn. 
Síðast uppfært ( föstudagur, 02 júlí 2010 )
 
Mercadona flytur um set
Höfundur Sveinn Arnar Nikulásson   
fimmtudagur, 01 júlí 2010
mercadona_los_balconesSjálfsagt hafa flestir tekið eftir því að búið er að loka Mercadona í Los Altos / La Ciñuelica (andspænis El Corte Chino). En það þýðir ekki að Mercadona sé að fækka verslunum, því í staðinn hefur ný verslun verið opnuð í Los Balcones. Auðvelt er að sjá hana á vinstri hönd þegar keyrt er meðfram Los Balcones í áttina til San Miguel. Þá er einfaldlega beygt upp að versluninni frá hringtorginu, sem er skammt undan. En hvað á eftir að koma í húsnæðið, sem áður hýsti Mercadona á hinum staðnum, á enn eftir að koma í ljós.
 
Virðisaukaskattur á Spáni hækkar
Höfundur Sigurður Þ. Ragnarsson   
miðvikudagur, 30 júní 2010

mercadona-1Virðisaukaskattur á öllu öðru en nauðþurftum hækkar á Spáni á morgun 1. júlí.

Virðisaukaskattsþrepin eru þrjú. Virðisaukaskattur á nauðþurftum (brauð, mjólk, vatn o.s.frv.) hækkar ekki og verður áfram 4%. Virðisaukaskattur af annari matvöru en nauðþurftum hækkar úr 7% í 8%. Virðisaukaskattur af öllu öðru hækkar síðan úr 16% í 18%. 

Hækkanir þessar eru hluti af aðgerðum ríkisstjórnar Zapatero til að minnka fjárlagahallan á ríkissjóði og ná tökum á efnahagsmálunum. Fleiri aðgerðir eru boðaðar eins og launafrysting lífeyrisþega og lækkun launa hjá ríkisstarfsmönnum á Spáni. 

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 10 af 453